Norðurbakki 15 - 0201 3ja herbergja 124,8 fm. íbúð á 2. hæð merkt 0201 auk 12,5 fm. sérgeymslu í kjallara, merkt 0008, í húsi númer 15 við Norðurbakka í Hafnarfirði. Íbúðinni fylgir bílastæði merkt B012 í bílageymsluhúsi.
BIRT STÆRÐ ÍBÚÐAR ER 135,3 fm.
Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu. Íbúðum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum en með flísalögðum baðherbergjum og þvottahúsgólfum.
Sjá nánar byggingarlýsingu fyrir Norðurbakka 15, 17, 19 og 21 Hafnarfirði, dags. 28.08.2007.
Nánari margmiðlunarupplýsingar um eignina er að finna hér
Norðurbakki 15 er glæsilega hannað fjögurra hæða lyftuhús í hjarta Hafnarfjarðar, með 8 íbúðum.
Húsið stendur í nýja bryggjuhverfinu í Hafnarfirði og ólíkt öðrum bryggjuhverfum á höfuðborgarsvæðinu snýr það mót suðri.
Aðkoma að íbúðunum er um upphitað stigahús þar sem tvær íbúðir eru á hverri hæð.
Sér bílastæði í sameiginlegum bílakjallara með húsum númer 17, 19 og 21 fylgir hverri íbúð.
Sér geymslur fyrir hverja íbúð eru í kjallara.
Sameign og lóð eru fullfrágengin með snjóbræddum bílageymslurampa og hellulögðum göngustígum. Á þaki bílakjallara er sameiginlegur garður með leiksvæði, garðbekkjum og púttvelli. Bílastæði verða hellulögð og aðgreind með litabreytingu í hellulögn. Stígar eru hellulagðir/ agðir grassteini sbr. teikningar lóðarhönnuða. Snjóbræðsla er við aðalanddyri hússins og niðurkeyrslu að bílageymslu. Gróðurbeð er við aðalinnganga og í aðkomu bílageymslu.
Burðarkerfi hússins er staðsteypt. Steyptir útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með álklæðningu og harðviðarklæðningu að hluta. Húsið er því viðhaldslítið. Gólfplötur eru einangraðar til aukinnar hljóðeinangrunar.
Einkenni skipulags hússins við Norðurbakka 15 er nýstárleg hönnun, mikið birtuflæði innan íbúða og hversu vel húsið fellur inn í gamla bæinn. Eins er mjög stutt í alla þjónustu vegna góðrar staðsetningar. Nútímaleg hönnun og allur frágangur er sérlega vandaður.
Sjónvarpsloftnets- og símatenglar eru frágengnir í stofu, borðkrók og svefnherbergjum. Í öllum íbúðum er tengikassi fyrir stjörnutengingar síma-, loftnets-, tölvu- og ljósleiðaratengingar.
Innréttingar eru spónlagðar. Kaupendur geta valið um þrjár viðartegundir. Í eldhúsi verður keramik helluborð með fjórum hellum, blástursofn og gufugleypir með kolasíu. Heimilistæki eru að AEG gerð með burstaðri stáláferð eða sambærilegt. Vegghengt salerni og flísalagður sturtubotn er á baðherbergi. Lyfjaskápur og slökkvitæki fylgir hverri íbúð.
Afhending er samkomulagsatriði. Verð kr. 38.100.000,-
Prenta | Til baka í íbúðarlista |