ENGLISH
 



 

Fá upplýsingar Senda vini Prenta Myndir
Margmiðlunarupplýsingar

Sóltún 10 - 0104
3ja herbergja íbúð á 1. hæð merkt 0104 í húsi númer 10 við Sóltún í Reykjavík. Birt stærð íbúðarinnar er 136,7 m2, þar af er 10,2 m2 sérgeymsla í kjallara merkt 0020. Íbúðinni fylgir bílastæði merkt B12 í bílageymsluhúsi. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu. Íbúðinni er skilað fullbúinni með parketi á gólfi, þó með flísalögðum baðherbergjum og þvottahúsgólfum. Granítborðplata, ísskáp, uppþvottavél og gardínur fylgja.
Sjá nánar byggingarlýsingu fyrir Sóltún 8-12 og Sóltún 14-18, Reykjavík, dags. 25.08.2005.

Nánari margmiðlunarupplýsingar um eignina er að finna hér

Sameign og lóð eru fullfrágengin með snjóbræðslu við aðalanddyri og niðurkeyrslu að bílageymslu. Bílastæði verða malbikuð og afmörkuð máluðum línum. Stígar hellulagðir. Leiksvæði er með sandkassa og leiktæki, sbr. teikningar lóðarhönnuða. Gróður við bílastæði er í upphækkuðum kerjum, auk minni gróðurbeða.

Sóltún 8-12 er sérlega glæsilega hannað fimm og sex hæða lyftuhús, með 33 íbúðum og þremur stigahúsum. Tvær íbúðir eru á hæð í hverjum stigagangi. Innangengt er í bílageymsluhús með 68 stæðum, en þau eru í sameiginlegum kjallara með Sóltúni 14-18.

Burðarkerfi hússins er staðsteypt. Steyptir útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með álklæðningu. Gólfplötur fyrstu hæðar og ofar eru einangraðar til aukinna hljóðeinangrunar. Húsið er því viðhaldslítið.

Einkenni skipulags húsanna við Sóltún 8-18 er hversu vel þau standa gagnvart sól og stutt er í alla þjónustu sem stafar af frábærri staðsetningu þeirra. Nútímaleg hönnun og allur frágangur er sérlega vandaður.

Sér bílastæði fylgir öllum íbúðum. Sér þvottahús er í hverri íbúð, auk þess eru rúmgóðar geymslur í kjallara fyrir hverja íbúð.

Tvennar svalir fylgja flestum íbúðum. Lofthæð íbúða er um 2,7 metrar. Sjónvarpsloftnets- og símatenglar eru frágengnir í stofu, borðkrók og svefnherbergjum. Í íbúð er tengikassi fyrir stjörnutengingar síma-, loftnets-, tölvu-, og ljósleiðaratengingar.

Innréttingar eru spónlagðar. Kaupendur geta valið um þrjár viðartegundir. Í eldhúsi verður keramik helluborð með fjórum hellum, blástursofn og gufugleypir með kolasíu. Heimilistæki eru að AEG gerð með burstaðri stáláferð eða sambærilegt.

Afhending er 14. nóvember 2008. Verð kr. 41.400.000,-



Prenta | Til baka í íbúðarlista

Skrifstofur Íslenskra aðalverktaka
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
S: 530 4200 Fax: 530 4205 iav@iav.is