Ártún 7 Húsið er raðhús á einni hæð í fimm raðhúsa lengju. Bílskúrsréttur fylgir húsinu. Því er skilað frágengnum að utan og milli foheldis og tilbúið til innréttinga *(byggingarstig A). Burðarkerfi hússins er timbur á steyptum undirstöðum. Útveggir eru einangraðir og klæddir með litaðri bárumálmklæðningu og að hluta með litaðri viðarklæðningu. Sameiginlegri lóð er skilað með malbikuðum bílastæðum. Heimtaugar eru frágengnar inn fyrir húsvegg. Sérlóð er þökulögð og með möl í innkeyrslum.
Nánari margmiðlunarupplýsingar um eignina er að finna hér
Ártún 7 er 3ja herbergja raðhús á einni hæð. Birt stærð íbúðar er 95,6 fm. Húsið skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu, eldhús og stofu.
*Byggingarstig A - íbúðum er skilað á byggingarstigi sem er á milli fokheldis og tilbúnu til innréttinga - sjá byggingarlýsingu A fyrir rað- og parhús Austurland, dags. 18.07.2006.
Byggingarstig B - íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna að undanskyldum baðherbergjum og þvottahúsgólfum sem eru flísalögð- sjá byggingarlýsingu B fyrir rað- og parhús fullbúið án gólfefna Austurland dags. 18.07.2006.
Verð skv. byggingarstigi B er: 18.550.000,-
Pípur fyrir raf- og boðlagnir eru tilbúnar í útveggjum og berandi innveggjum. Gólfhitalagnir til upphitunar eru innsteyptar í gólfplötu. Neysluvatnlagnir eru í ídráttarröri.
Afhendingartími er samkomulagsatriði. Verð kr. 13.400.000,-.
Prenta | Til baka í íbúðarlista |