Hrólfsskálamelur 4 - 0106 2ja herbergja 94,9 fm. íbúð á 1. hæð merkt 0106 auk 12,5 fm. sérgeymslu í kjallara merkt 0013 í húsi númer 4 við Hrólfsskálamel á Seltjarnarnesi. Íbúðinni fylgir bílastæði merkt B15 í bílageymsluhúsi.
BIRT STÆRÐ ÍBÚÐAR ER 107,4 fm.
Nánari margmiðlunarupplýsingar um eignina er að finna hér
Íbúðin skiptist í eitt svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu. Íbúðum er skilað fullbúnum með parketlögðum gólfum og flísalögðu anddyri, baðherbergi og þvottahúsgólfum.
Sjá nánar byggingarlýsingu fyrir Hrólfsskálamel 2-8, Seltjarnarnesi, dags. 15. mars 2008.
Hrólfsskálamelur 2-8 er glæsilega hannað þriggja hæða lyftuhús með 26 íbúðum á mjög fallegum stað á Seltjarnarnesi.
Í húsinu erum fjögur stigahús með að jafnaði tveimur íbúðum á hverri hæð. Bílageymsluhús er sameiginlegt með tveimur öðrum fjölbýlishúsum á lóðinni. Innangengt er úr bílageymsluhúsi í stigaganga í kjallara, þar sem sérgeymslur íbúðanna eru.
Sameign og lóð eru fullfrágengin með snjóbræðslu við aðalanddyri, í aðalgöngustígum og í niðurkeyrslu að bílageymslu. Bílastæði verða malbikuð og afmörkuð máluðum línum. Stígar hellulagðir sbr. teikningar lóðarhönnuða. Leiksvæði er með sandkassa og leiktækjum, sbr. teikningar lóðarhönnuða. Gróður við bílastæði er í upphækkuðum kerjum auk minni gróðurbeða.
Burðarkerfi hússins er staðsteyptir veggir og forsteyptar loftaplötur, svalir og stigar. Steyptir útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með flísum og málmklæðningu. Húsið er því viðhaldslítið.
Einkenni skipulags hússins við Hrólfsskálamel 2-8 er hversu vel það fellur inn í nánasta umhverfi nærri miðbæjarkjarna Seltjarnarness. Mjög stutt er í alla þjónustu. Nútímaleg hönnun og allur frágangur er sérlega vandaður. Gæðastig íbúðanna er með því hæsta sem þekkist á markaðnum.
Innréttingar: Sýnilegir fletir eru spónlagðir og borðplötur eru úr steini. Kaupendur geta valið um viðartegundir. Í eldhúsi verður spanhelluborð með fjórum hellum, blástursofn og gufugleypir með kolasíu. Heimilistæki eru að MIELE gerð með burstaðri stáláferð eða sambærilegt. Vegghengt salerni, flíslagður sturtubotn og baðker (fylgir flestum íbúðunum) með hitastýrðu blöndunartæki. Tækniskápur verður staðsettur miðsvæðis í hverri íbúð með lág- og smáspennutöflu fyrir raflagnir, loftræsieiningu íbúðarinnar ásamt hillum fyrir afruglara. Lyfjaskápur og slökkvitæki fylgir hverri íbúð. Loft í íbúðunum er niðurtekin.
Afhending er samkomulagsatriði. Verð kr. 44.800.000,-
Prenta | Til baka í íbúðarlista |