Hrólfsskálamelur 2 - 0201 5 herbergja 166,6 fm. íbúð á 2. hæð merkt 0201 auk 18,2 fm. og 14,0 fm. sérgeymslna í kjallara merkt 0003 og 0007 í húsi númer 2 við Hrólfsskálamel á Seltjarnarnesi. Íbúðinni fylga þrjú bílastæði merkt B27 og B28 í bílageymsluhúsi.
BIRT STÆRÐ ÍBÚÐAR ER 198,8 fm.
Nánari margmiðlunarupplýsingar um eignina er að finna hér
Íbúðin skiptist í fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu. Íbúðum er skilað fullbúnum með parketlögðum gólfum og flísalögðu anddyri, baðherbergi og þvottahúsgólfum.
Sjá nánar byggingarlýsingu fyrir Hrólfsskálamel 2-8, Seltjarnarnesi, dags. 15. mars 2008.
Hrólfsskálamelur 2-8 er glæsilega hannað þriggja hæða lyftuhús með 26 íbúðum á mjög fallegum stað á Seltjarnarnesi.
Í húsinu erum fjögur stigahús með að jafnaði tveimur íbúðum á hverri hæð. Bílageymsluhús er sameiginlegt með tveimur öðrum fjölbýlishúsum á lóðinni. Innangengt er úr bílageymsluhúsi í stigaganga í kjallara, þar sem sérgeymslur íbúðanna eru.
Sameign og lóð eru fullfrágengin með snjóbræðslu við aðalanddyri, í aðalgöngustígum og í niðurkeyrslu að bílageymslu. Bílastæði verða malbikuð og afmörkuð máluðum línum. Stígar hellulagðir sbr. teikningar lóðarhönnuða. Leiksvæði er með sandkassa og leiktækjum, sbr. teikningar lóðarhönnuða. Gróður við bílastæði er í upphækkuðum kerjum auk minni gróðurbeða.
Burðarkerfi hússins er staðsteyptir veggir og forsteyptar loftaplötur, svalir og stigar. Steyptir útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með flísum og málmklæðningu. Svalaskýli úr hertu gleri verður fyrir svölum íbúða. Húsið er því viðhaldslítið.
Einkenni skipulags hússins við Hrólfsskálamel 2-8 er hversu vel það fellur inn í nánasta umhverfi nærri miðbæjarkjarna Seltjarnarness. Mjög stutt er í alla þjónustu. Nútímaleg hönnun og allur frágangur er sérlega vandaður. Gæðastig íbúðanna er með því hæsta sem þekkist á markaðnum.
Innréttingar: Sýnilegir fletir eru spónlagðir / sprautulakkaðir / gler og borðplötur eru úr steini. Kaupendur geta valið um viðartegundir. Í eldhúsi verður spanhelluborð með fjórum hellum, blástursofn, örbylgjuofn og gufugleypir með kolasíu. Heimilistæki eru að MIELE gerð með burstaðri stáláferð eða sambærilegt. Vegghengt salerni, flíslagður sturtubotn og baðker (fylgir flestum íbúðunum) með hitastýrðu blöndunartæki. Tækniskápur verður staðsettur miðsvæðis í hverri íbúð með tölvustýringu fyrir lýsingu, gólfhita, lág- og smáspennutafla fyrir raflagnir, loftræsieining íbúðarinnar ásamt hillum fyrir afruglara, miðlæga tölvu o.fl. Lyfjaskápur, og slökkvitæki fylgir hverri íbúð. Loft í íbúðunum er niðurtekin og með innfelldri lýsingu.
Afhending er samkomulagsatriði Verð kr. 112.800.000,-
Prenta | Til baka í íbúðarlista |