| 04.03.2010 |
| Svissneska verktakafyrirtækið Marti yfirtekur starfsemi Íslenskra aðalverktaka |
|
|
Íslenskir aðalverktakar hf. (ÍAV) hafa skipt um eigendur. Arion banki og svissneska verktakafyrirtækið Marti Holding AG (Marti) hafa að undanförnu unnið með stjórnendum fyrirtækisins að endurskipulagningu þess. Niðurstaða þeirrar vinnu er sú að framtíð ÍAV sé best tryggð með yfirtöku Marti á ÍAV og samhliða mun Arion banki taka yfir fasteignahluta félagsins. Endurskipulagningu ÍAV mun ljúka á næstu vikum að lokinni áreiðanleikakönnun. |
| Nánar |
 | |
| 11.02.2010 |
| Fréttir af framkvæmdum við bílastæðahús Hörpunnar |
|
|
Verið er að byggja bílastæðahús neðanjarðar við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu. Um mikið mannvirki er að ræða enda mun bílakjallarinn verða á tveimur hæðum og rúma 545 bíla. Áætlanir gera ráð fyrir að í mannvirkið fari um 24.000 m3 af steypu, 2.350 tonn af stáli og 18.600 m2 af kúluplötum. |
| Nánar |
 | |
| 05.02.2010 |
| Jón Gnarr heimsótti starfsmenn ÍAV |
|
|
Það var enginn annar en „frambjóðandinn„ Jón Gnarr sem leit við fyrir skemmstu og heilsaði upp á starfsmenn ÍAV sem vinna við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Hann var í þeim erindagjörðum að kynna sig sem frambjóðanda „Besta flokksins“. |
| Nánar |
 | |