ENGLISH
 

Um ÍAV

CE vottun

Náma ÍAV að Rauðamel með vottun

ÍAV fékk í mars 2009 heimild til þess að CE-merkja framleiðslu sína í námunni að Rauðamel við Stapafell á Suðurnesjum. Steinefni námunnar sem framleidd eru uppfylla skilyrði tilskipunar um viðskipti með byggingarvörur Evrópusambandsins 89/106/EEC.

Mánuðina á undan var unnið að stöðlun framleiðslunnar á grundvelli staðalsins EN 12620:2002 um fylliefni í steinsteypu. Til að staðfesta samræmi eru tekin sýni af framleiðslunni skv. fyrirfram ákveðinni rannsóknaráætlun og þau rannsökuð af hlutlausri rannsóknarstofu. Framleiðslustýrikerfi fyrir námuna hefur verið tekið út og vottað af BSI á Íslandi.

 EC – Samræmisyfirlýsing

 Steinefnaframleiðsla – Rauðamel

Íslenskir aðalverktakar hf.
lýsa því yfir að steinefni sem talin eru upp í viðauka I, meðfylgjandi þessari samræmisyfirlýsingu og eru framleidd í námu fyrirtækisins að Rauðamel við Stapafell á Suðurnesjum uppfylla skilyrði
Tilskipunar um viðskipti með byggingarvörur / Construction products - 89/106/EEC. Einnig kröfum sem koma fram í staðlinum ÍST EN 12620:2002, fylliefni í steinsteypu / Aggregates for concrete og kröfum samkvæmt viðauka Annex ZA.1

Við mat á samræmi er notuð leið sem kemur fram í ÍST EN 12620:2002, töflu ZA.2a, 2+

Til að staðfesta samræmi eru tekin sýni af framleiðslunni samkvæmt fyrirskrifuðu rannsóknarplani og þau rannsökuð
af hlutlausri rannsóknarstofu

Framleiðslustýrikerfi fyrir Rauðamel / Stapafellsnáma hefur verið tekið út og vottað af BSI Product Services
(notified body number 0086).

EC - Skírteini númer 0086-CPD-546980 fyrir framleiðslueftirlit var fyrst gefið út 17. mars 2009.

Reykjavík, 20. mars 2009

Fh. Íslenskra aðalverktaka hf

sign

Gunnar Sverrisson

forstjóri

 

 Viðauki I


Listi yfir vörur framleiddar í námunni Rauðimelur / Stapafelli


Framleiðsluheiti

Lýsing á framleiðslu

ME 19 – salli

efni með kornastærð frá 0/8 mm

ME 13 – perla

efni með kornastærð frá 0/22 mm

ME 12 – sandur

efni með kornastærð frá 0/8 mm

Nánari efnis- og efnafræðilegir eiginleikar efnanna koma fram á meðfylgjandi CE merkingar skírteinum.

Smelltu hér til að sjá vottunarskjölin í heild sinni

Skrifstofur Íslenskra aðalverktaka
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
S: 530 4200 Fax: 530 4205 iav@iav.is