
Velkomin á síðu Ósafls
Ósafl er að byggja jarðgöng milli Bolungarvíkur og Hnífsdals ásamt því að sjá um framkvæmdir við snjóflóðavarnir Bolvíkinga.
Ósafl, dótturfyrirtæki Íslenskra aðalverktaka (ÍAV) og svissneska verktakafyrirtækisins Marti Contractors, sér um gerð Bolungarvíkurganga. ÍAV eru annað tveggja stærstu verktakafyrirtækja landsins með rúmlega hálfrar aldar starfsreynslu og um 600 manns á launaskrá og annan eins fjölda starfsmanna hjá undirverktökum. Marti Contractors er rúmlega 80 ára gamalt fyrirtæki með starfsemi víða um heim og um 3.000 starfsmenn.
Hér má sjá frétt um fyrstu sprengingu gangnanna Bolungarvíkurmegin ásamt upptöku af sprengingunni. Smelltu hér.
Vegagerðin, í samráði við bb.is, hefur opnað sérstaka upplýsingasíðu um Óshlíðargöng - sjá hér.
|