ENGLISH
 



Fasteignaþjónusta
Fasteignaþjónusta ÍAV, fyrir fasteignaeigendur: Einkafyrirtæki, ríki og sveitarfélög.

Húsfélög geta gert þjónustusamning við ÍAV um fasteignaþjónustu. Þjónustan sem í boði er felst m.a. í aðgengi að þjónustuborði sem er opið allan sólarhringinn fyrir viðskiptavini ÍAV. Föst verðskrá á við um reglulegar og tilfallandi skoðanir fasteigna og vinnu iðnaðarmanna. Haldið er utan um verkferla og staðlaðar upplýsingar fasteigna á sérstökum vef þar sem hver verkkaupi hefur aðgang að upplýsingum um sínar eignir. Á vefnum eru allar verkbeiðnir, tíma- og kostnaðartölur auk upplýsinga um þætti sem tengjast byggingunnni s.s. teikningar, ljósmyndir, orkuskráningar, eignaskiptasamningar, byggingarlýsingar, viðhalds- og viðgerðarsaga o.fl.

Fyrirbyggjandi viðhald lækkar kostnað
Þegar reynsla og þekking á viðfangsefninu fæst smám saman eftir útköll, viðgerðir og skoðunarferðir er hægt að koma fram með tillögur um sparnað og hagræðingu auk forgangsröðunar fjármagns á næstu viðhaldsáætlun. Reglulegar skýrslur verður hægt að prenta út auk þess verða haldnir reglulegir fundir með fulltrúum fasteignaeigenda. Með þessum hætti verður hægt að tryggja faglega ákvarðanatöku og lækka kostnað með fyrirbyggjandi viðhaldi.

Helstu kostir fasteignaþjónustu ÍAV:

Aðgangur að húsfélagavef

  • Fundargerðir
  • Framkvæmdasaga
  • Teikningar, ljósmyndir
  • Samskiptavefur
  • Orkuskráning
  • Eignaskiptasamningar
  • Þjónustuaðilar
  • Aðgangur að fjármálavef Íslandsbanka
  • Aðgangur að fyrirspurnarvef Línuhönnunar hf

Aðgangur að þjónustuborði ÍAV

  • Hægt að hringja í eitt símanúmer - 420 4200
  • Ráðgjöf frá þjónustuborði vegna sameignar
  • Verkbeiðnir gefnar út á þjónustu
  • Verkbeiðnir skrá samskiptasögu
  • Hægt að sjá öll verkefni á húsfélagavef

Reglulegar skoðanir fagmanna hjá ÍAV-þjónustu

  • Hús- og sameign skoðuð árlega
  • Árlegur fundur með húsverði eða tengilið húsfélags
  • Hús- og sameignarskýrsla gefin út ásamt tillögum og kostnaðaráætlun
  • Húskerfi yfirfarin og leiðbeiningar veittar
  • Skráning allra skoðanagagna á húsfélagavef

Ávinningur húsfélags

  • Reglulegar skoðanir tryggja faglega ákvarðanatöku
  • Réttir hlutir unnir á réttum tíma
  • Öll framkvæmdasaga og upplýsingar geymdar
  • Færri stærri útboð með tímanum
  • Þjónustuborð veitir öryggi og skjót viðbrögð

Notendur fá aðganga að húsfélagavef

Skrifstofur Íslenskra aðalverktaka
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
S: 530 4200 Fax: 530 4205 iav@iav.is