ENGLISH
 


 

 

Um ÍAV
17.11.2009
Jarðgangahlutar sameinast

Í gær var klárað að sprengja næst síðustu sprenginguna í veghluta Bolungarvíkurganganna.  Eftir sprenginguna opnaðist á milli jarðgangahlutanna en ástæðuna má rekja til þess að mjög veik setlög í efri hluta stafns ganganna gáfu eftir. Vegna öryggis starfsmanna var ákveðið að ljúka við að sprengja það sem eftir var,  styrkja loft og veggi svo ekki stafaði hætta á frekara hruni.

Framundan er frekari sprengivinna í síðasta útskoti ganganna ásamt bergstyrkingum svo hægt verði að bjóða gestum að skoða göngin á öruggan hátt þegar síðasta sprengihleðslan í verkinu verður sprengd  og þessum stóra áfanga fagnað þann 28. nóvember.


« Til baka
Skrifstofur Íslenskra aðalverktaka
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
S: 530 4200 Fax: 530 4205 iav@iav.is