ENGLISH
 
Um ÍAV

Umhverfisstefna

Íslenskir aðalverktakar vilja vernda og hlúa að hinni hreinu og óspilltu náttúru landsins. Til að ná fram þessu markmiði sínu stefnir félagið að því að beita jafnt umhverfisvænum og hagkvæmum aðferðum í verkefnum sínum. Áhersla verður lögð á skilvirka nýtingu auðlinda og næmni gagnvart menningarlegum og samfélagslegum gildum.


Með því að beita nýjustu tækni á þessum sviðum ætlar félagið að samræma þau markmið sín að mæta þörfum viðskiptavina, tryggja arðsemi og vernda íslenska náttúru.

 

Skrifstofur Íslenskra aðalverktaka
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
S: 530 4200 Fax: 530 4205 iav@iav.is