Smelltu hér að neðan til að skoða einblöðunga á PDF formi með upplýsingum um verkið
| ÍAV sjá um framkvæmdir fyrir Mörkina |
| ÍAV hafa tekið að sér að ljúka framkvæmdum við þrjú fjölbýlishús að Suðurlandsbraut 58-60 . Húsin eru fjögurra hæða auk kjallara og tengjast húsin saman með bílakjallara. Í hverju húsi eru 26 íbúðir og eru íbúðirnar því 78 talsins og er heildarstærð þeirra tæplega 14.000 fermetrar. ÍAV munu taka við framkvæmdinni þegar húsin eru uppsteypt og sjá um fullnaðarfrágang en gert er ráð fyrir að uppsteypu ljúki í aprílmánuði. Íbúðirnar verða seldar eldriborgunum en Mörkin eignarhaldsfélag mun sjá um söluna. Verkefnastjóri er Jóhannes Kristjánsson og byggingastjóri er Guðmundur Jóhannesson. | |
| Gullengi |
Í júlí 2007 hófu starfsmenn ÍAV byggingu húsanna að Gullengi 2 og 4 í Grafarvogi. Gullengi 2 og 4 eru tvö þriggja hæða fjölbýlishús, með þremur íbúðum á hæð. Sérinngangur er í hverja íbúð. Í kjöllurum eru sérgeymslur íbúða, hjóla- og vagnageymslur ásamt tæknirýmum. Hjóla- og vagnageymslur eru einnig á jarðhæðum.
Húsin standa á grónum og eftirsóttum stað, nærri allri þjónustu, svo sem skólum og verslunum. Útveggir eru með steiningaráferð og viðarklæddir að hluta sbr. teikningar arkitekta. Sameignir og lóðir verða fullfrágengar með snjóbræðslulögnum í hluta af hellulögðum göngustígum. Íbúðum verður skilað fullbúnum án gólfefna en með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Lóðir verða frágengnar samkvæmt teikningum arkitekta. Verklok á húsi númer 4 eru áætluð í maí 2008, verklok á húsi númer 2 eru í október 2008.
Verkefnastjóri er Kristján Leifsson og byggingastjóri er Haukur Þórisson. | |
| Íbúðabyggingar á Austurlandi |
Fyrrihluta árs 2004 hófu ÍAV uppbyggingu íbúða á Austurlandi. Alls hafa ÍAV fengið úthlutað lóð undir 151 íbúð í Bakkagerði í Reyðarfirði. Í Bakkagerði verða samkvæmt gildandi skipulagi 55 einbýlishús, 44 íbúðir í rað- og parhúsum og 52 íbúðir í fjölbýlishúsum. Fjölbýlishúsin verða lágreist, 2-3 hæðir með 5 til 16 íbúðum.
Á Egilsstöðum hafa ÍAV fengið úthlutað lóðum fyrir 123 íbúðir í Votahvammi. Á svæðinu verða 10 einbýlishús, 41 íbúð í rað- og parhúsum og 72 íbúðir í fjölbýlishúsum. Fjölbýlishúsin verða þriggja hæða með 12 íbúðum hvert.
| |
| Sóltún 8-18 |
Framkvæmdir hófust í ágúst 2005 við bygginu tveggja fjölbýlishúsa í Sóltúni. Íbúðirnar eru lúxusíbúðir, þar sem mikið er lagt upp úr þægindum og glæsilegri hönnun. Húsin eru fjögra, fimm, og sjö hæða lyftuhús. Í öðru húsinu eru 32 íbúðir en 33 íbúðir í hinu húsinu.
Steyptir útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með álklæðningu. Gólfplötur fyrstu hæðar og ofar eru einangraðar til aukinnar hljóðeinangrunar. Verklok voru sumarið 2007.
| |
| Gullengi 6 |
Verkkaupi: Sellt á almennum markaði
Verk hafið: Í maí 2006
Verklok: Í apríl 2007
Stutt lýsing á verki: Gullengi 6 er þriggja hæða fjölbýlishús, með þremur íbúðum á hæð. Sérinngangur er í hverja íbúð. Í kjallara eru sérgeymslur íbúða, hjóla- og vagnageymsla ásamt tæknirými. Hjóla- og vagnageymsla er einnig á jarðhæð. Útveggir eru með steiningaráferð og viðarklæddir að hluta sbr. teikningar arkitekta. Sameign og lóð er fullfrágengin með snjóbræðslulögnum í hluta af hellulögðum göngustígum. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna en með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Lóð er frágengin samkvæmt teikningum arkitekta. | |
| Ásakór 2 - 4 |
Verkkaupi: Íbúðir seldar á almennum markaði.
Verk hófst: Í september 2005
Verki lauk: Í mars 2007
Stutt lýsing á verki: Ásakór 2 - 4 í Kópavogi er þriggja hæða fjölbýlishús með sex íbúðum á hæð, samtals átján íbúðir. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Hverri íbúð fylgir bílastæði í bílageymslu. Sameign og lóð er fullfrágengin með snjóbræðslulögnum í bílageymslurampa. | |
| Fjölbýlis- og raðhús við Klapparhlíð í Mosfellsbæ |
ÍAV hófu í júní 2001 framkvæmdir við uppbyggingu nýs íbúðahverfis við Klapparhlíð í Mosfellsbæ með blandaðri byggð lítilla fjölbýlishúsa. Hverfið er skipulagt af teiknistofunni Úti og Inni en við hönnun þess var lögð áhersla á fallegan heildarsvip með góðu rými á milli húsa og góða stöðu gagnvart sól og útsýni. Í hverfinu eru um 200 íbúðir þar af 60 íbúðir fyrir 50 ára og eldri og 14 íbúða í raðhúsum. | |
| Perlukór í Kópavogi |
Verkkaupi: Selt á almennum markaði
Verk hafið: Maí 2005
Verklok: Júlí 2006
Stutt lýsing á verki: Perlukór 3, hús A, B, C, D og E eru tveggja hæða hús með 3 íbúðum hvert, ásamt bílageymsluhúsi með 15 bílastæðum. | |
| Íbúðir við Þrastarhöfða |
Verkkaupi: Íbúðir seldar á almennum markaði
Verk hafið: Haust 2004
Verklok: Október 2006
Stutt lýsing á verki: Bygging fjölbýlishúsa við Þrastarhöfða í Mosfellsbæ | |
| Smáraflöt Akranesi |
Unnið er að byggingu 12 íbúða fjölbýlishúss við Smáraflöt 3. Í dag er verið að reisa 2 önnur fjölbýli og búið er að byggja raðhús við sömu götu. Smáraflöt 3 er þriggja hæða hús með 4 íbúðum á hæð. Sér inngangur er í hverja íbúð. Íbúðirnar verða afhentar full frágengnar, parket á gólfum, en flísar á anddyris- geymslu-, baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Sameign og lóð skilast fullfrágengin og snjóbræðsla verður í hluta hellulagðra stétta.

| |
| Parhús við Steinás, Njarðvík |
ÍAV hóf framkvæmdir á vel hönnuðum parhúsum í Njarðvík í apríl 2002. Húsin voru einingahús að utan með bárumálmklæðningum. Þeim var skilað tilbúnum til innréttinga auk spörtulunar og grunnmálingar. Verklok voru í febrúar 2004.
| |
| Íbúðablokkir á Keflavíkurflugvelli |
Endurbygging tveggja fjölbýlishúsa með alls 24 íbúðum hófst haustið 2001. Endurbygging íbúðanna felur í sér að fækka íbúðum í húsunum með því að opna milli tveggja meðalstórra íbúða og breyta í eina mjög stóra. Verklok eru áætluð um mitt ár 2002.
| |
| Reykjahvolsmelar, Mosfellsbæ |
Verkkaupi: Selt á almennum markaði Verk hafið: 1988 Verklok: 1993 Stutt lýsing á verki: 144 íbúðir í sérbýli, afhendar tilbúnar undir tréverk.
| |
| Holtabyggð, Hafnarfirði |
Verkkaupi: Selt á almennum markaði Verk hafið: Febrúar 1999 Verklok: Mars 2000 Stutt lýsing á verki: 20 íbúðir í litlum fjölbýlishúsum | |
| Íbúðir við Þórðarsveig 2-6 |
Verkkaupi: Selt á almennum markaði Verk hafið: Ágúst 2002 Verklok: Ágúst 2004 Stutt lýsing á verki: Bygging 61 íbúðar í þremur sambyggðum fjölbýlishúsum á fjórum og fimm hæðum. | |
| Keðju, par- og raðhús á Álftanesi |
Verkkaupi: Selt á almennum markaði  Verk hafið: Október 1999 Verklok: Júlí 2001 Stutt lýsing á verki: Bygging fokheldra keðju-, par- og raðhúsa sem afhendust fullfrágengin að utan. Hverfinu skilað fullfrágengnum.
| |
| Raðhús við Smáraflöt, Akranesi |
Verkkaupi: Byggt á almennum markaði Verk hafið: Janúar 2003 Verklok: Desember 2003 Stutt lýsing á verki: Raðhúsalengja á einni hæð með innbyggðum bílskúrum.
| |
| Raðhús við Hulduhlíð í Mosfellsbæ |
Verkkaupi: Selt á almennum markaði Verk hafið: Janúar 2000 Verklok: Nóvember 2000 Stutt lýsing á verki: Bygging fokheldra raðhúsa sem afhendust fullfrágengin að utan.
| |
| Íbúðir á Álftanesi |
Verkkaupi: Selt á almennum markaði  Verk hafið: Október 1997 Verklok: Júli 2001 Stutt lýsing á verki: Bygging 67 íbúða, þar af 12 raðhús, 18 parhús og 23 einbýlishúsalóðir auk 14 íbúða í keðjuhúsum. | |
| Fjölbýlishúsið Breiðablik |
Verkkaupi: Byggingasamvinnufélagið Breiðablik  Verk hafið: 1985 Verklok: 1987 Stutt lýsing á verki: 32 íbúðir í fjölbýlishúsi þjónustumiðstöð og sundlaug.
| |
|
| Íbúðir á Laugarnesvegi 87 og 89 |
Verkkaupi: Selt á almennum markaði Verk hafið: September 2001 Verklok: September 2003 Stutt lýsing á verki: Bygging 60 íbúða í tveimur L-laga fjölbýlishúsum á fimm og sex hæðum.
| |
|
| Jökulgrunnur 1 - 29 |
Verkkaupi: DAS  Verk hafið: 1989 Verklok: 1991 Stutt lýsing á verki: 25 fullbúnar íbúðir ásamt gatnagerð og lóðafrágangi.
| |
|
| Lúxusíbúðir við Borgartún |
Verkkaupi: Selt á almennum markaði Verk hafið: Júlí 2002 Verklok: Ágúst 2003 Stutt lýsing á verki: Fjölbýlishús með bílageymslu í kjallara.
| |