Sjávarlögn fyrir HS Orku
Verkið felst í að leggja um 4,5 km langa stofnlögn frá niðurdælingarsvæði orkuversins við Þorbjarnarfell til sjávar í Arfadalsvík sem er vestan við Grindavík. Lögnin er að mestu niðurgrafin DN 500 mm stálpípa í q 630 mm plastkápu en næst niðurdælingarsvæðinu er hún DN 400 mm og ofanjarðar.
Lögnin liggur um óslétt hraun og skal jafna og byggja upp um 8 m breytt vegstæði fyrir vinnuslóða og lögnina. Gert er r´ð fyrir að uppgrafið efni úr veg- og skurðstæði verði notað í undirfyllingar í lagnaleiðinni en einnig skal fylla með aðkeyrðu fyllingarefni.
Lögnina skal tengja við ofanjarðaræð á niðurdælingarsvæðinu. Í Lagnaskurð fyrir lögnina skal einnig leggja blástursrör fyrir ljósleiðara.
Tveir loka- og tengibrunnar eru á lögninni og felst verkið einnig í því að steypa brunnana og setja upp loka og tæmingarlögn í þeim. Þeir eru um 10 fermetrar að grunnfleti hvor.
Helstu magntölur:
Gröftur í laus jarðlög 17.000 m³
Klapparskering 15.000 m³
Fylling aðkeyrðt efni 18.000 m³
Fylling með uppgröfnu efni 18.000 m³
Pípulögn,söndun og suða 4.480 m
Steypumót 200 m²
Járnbending 2.000 kg
Steynsteypa 25 m³
Verkkaupi |
HS Orka hf |
Verk hafið | September 2015 |
Verklok | Júlí 2016 |
Hönnun | Verfræðistofan Verkís hf |
Eftirlit | Verkfræðistofa Suðurnesja. Skúli Ágústsson |