Almennar fréttir

11. september 2020

ÍAV er aðalverktaki fyrsta áfanga Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði

Í dag var skrifað undir verksamning um nýbyggingu Vestfjarðavegar á 10 km kafla.  Verkið felst annars vegar í gerð 5,7 km langs kafla við Þverdalsá, upp af Flókalundi við Vatnsfjörð, og hins vegar í gerð 4,3 km langs kafla fyrir Meðalnes, milli Borgarfjarðar og Dynjandisvogs.  Reiknað er með að framkvæmdir hefjist um næstu mánaðamót.  Verkinu skal lokið 30. september 2021.  Meðfylgjandi myndir tók G. Pétur Matthíasson við undirritunina.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Fréttasafn