Almennar fréttir

02. apríl 2020

ÍAV er aðalverktaki við breytingar á húsnæði Regins fyrir Vegagerðina

Þann 27. mars sl. var undirritaður verksamningur milli ÍAV og Regins vegna framkvæmda við nýjar höfuðstöðvar Vegagerðarinnar sem verða í Suðurhrauni 3 í Garðabæ.  Núverandi bygging þar verður rifin að hluta og endurbyggð að hluta.  Gert er ráð fyrir 2.500m2 geymsluhúsnæði ásamt 3.500m2 skrifstofubyggingu á þremur hæðum.  Verklok eru áætluð í febrúar 2021.  Myndin sýnir fyrirhugað útlit hússins eftir breytingar.

(Mynd:Vegagerðin.is)

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Formleg afhending "West End project"
06. júní 2023

Formleg afhending "West End project"

24.maí 2023 tók Bandaríkjaher formlega við verkinu „West End project“. Athöfnin var haldin uppá Keflavíkurflugvelli með fulltrúm verkkaupa, Íslenskra aðalverktaka og Landhelgisgæslunnar.

Fréttasafn