Almennar fréttir

05. september 2008

ÍAV leiðir hjálparstarf í Afríku

Á smáeyjum í Indlandshafi hafa Íslenskir aðalverktakar ásamt fjölda fyrirtækja tölvuvætt alla grunnskóla Seychelles-eyja.

Verkefnið hefur staðið í rúm tvö ár og fjöldi tæknimanna og kennara farið á staðinn til að kenna á búnaðinn. Alls hafa rúmlega 500 tölvur verið settar upp í skólunum og þær allar búnar íslenskum kennsluhugbúnaði.

Meðal fyrirtækja og stofnana sem hafa stutt þetta eru Skýrr, Opin Kerfi, Glitnir, Síminn, Microsoft, Unesco, Námsgagnastofnun, Kaupþing, Eimskip, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær, Nýherji, Ískraft, Klæðning, Og Svo ehf., Monstro, Byggingafélagið Bakki, Hlaðbær-Colas, Holræsahreinsun, Ísar hf og fleiri. Á Seychelleseyjum: Menntamálaráðuneyti Seychelles, Air Seychelles og Cable & Wirless.

Alls hafa rúmlega 20 manns farið til eyjanna vegna verkefnisins frá júní 2006.

Hér má lesa um verkefnið.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Fréttasafn