Almennar fréttir

11. desember 2006

ÍAV sjá um byggingaframkvæmdir í Skugganum

ÍAV og 101 Skuggahverfi hafa undirritað samstarfssamning um byggingaframkvæmdir við annan áfanga Skuggahverfis. Á byggingareitnum rísa fimm íbúðarhús með 97 íbúðum. Framkvæmdir eru þegar hafnar. Áhugasamir kaupendur geta skráð sig á heimasíðu 101 Skuggahverfis, www.101skuggi.is.

 „Við erum ákaflega ánægðir með þetta samstarf og finnst spennandi að fá að taka þátt í uppbyggingu miðborgarinnar með þessum hætti. Byggingarnar munu setja glæsilegan svip á strandlínu borgarinnar“ sagði Gunnar Sverrisson, forstjóri Íslenskra aðalverktaka: „Það er ekki á hverjum degi sem ráðist er í jafn mikla uppbyggingu í Reykjavík á einu bretti. Íslenskir aðalverktakar hafa sýnt það í gegnum árin að fyrirtækið er mjög vel í stakk búið til þess að takast á við verkefni af þessari stærðargráðu enda fá verktakafyrirtæki á Íslandi sem hafa yfir jafn mikilli reynslu að ráða.”

Byggingarsvæðið afmarkast af Skúlagötu, Frakkastíg, Lindargötu og Vatnsstíg. Hæsta byggingin mun standa við Vatnsstíg og verður 63 metrar eða 19 hæðir. Þá munu tvær lægri byggingar standa við sömu götu, sem verða annars vegar átta hæða og hins vegar þriggja hæða. Við Lindargötu verða síðan tvær byggingar, önnur þriggja hæða en hin 11 hæða. Húsasamstæðurnar verða tengdar saman neðanjarðar með bílageymslum á þremur hæðum, en samtals verða rúmlega 250 bílastæði í öðrum og þriðja áfanga.

Byggingastjóri er Oddur H. Oddsson og verkefnisstjórar Guðmundur Karl Marinósson og Heiðar Ásgeirsson.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Fréttasafn