Almennar fréttir

13. apríl 2007

ÍAV sjá um innanhúsfrágang á Borgartúni 26

Undirritaður hefur verið samningur milli ÍAV og Þyrpingar þess efnis að ÍAV sjái um frágang á skrifstofu- og verslunarhúsnæði í eigu Þyrpingar sem stendur við Borgartún 26.  Verkið nær til alls efnis, flutninga og vinnu sem þarf til að ljúka verkefninu að fullu ásamt rekstri vinnustaðarins og allri stjórnun á byggingastað.

ÍAV hófu í september 2005 vinnu við byggingu hússins.  Húsið skiptist  í tvo misháa hluta, fimm og átta hæða, að auki er hálf hæð ofan við lyftuturn fyrir tæknirými. Fyrir miðju húsi er aðalstigahús með þremur lyftum. Stigahús eru einnig við vesturenda og á austurgafli. Hluti hússins er einangraður að utan með ýmsum gerðum af klæðningum, einnig er hluti hússins sjónsteypa sem einangruð að innan. Húsið er um 12.000 fermetra stórt með 345 bílastæðum, þar af verða 200 bílastæði niðurgrafin.

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn