Almennar fréttir

16. mars 2006

ÍAV verður á sýningunni Verk og vit

ÍAV mun vera á sýningunni Verk og vit sem er haldin í Laugardalshöllinni dagana 16-19 mars. Opið verður fyrir fagaðila fimmtudaginn frá 17-20 og föstudaginn frá 12-12. Opið verður fyrir almenning laugardaginn og sunnudaginn milli kl. 12 og 17. Við hvetjum alla þá sem vilja fá upplýsingar um starfsemi ÍAV og þær fasteignir sem til sölu eru hjá fyrirtækinu að mæta.

Heimasíða sýningarinnar er verkogvit.is

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn