Almennar fréttir

10. febrúar 2005

Íbúðir við Herjólfsgötu í Hafnarfirði

Unnið er að byggingu 49 íbúða við Herjólfsgötu 36 - 40 í Hafnarfirði fyrir 60 ára og eldri. Þetta eru 3 fjögurra hæða fjölbýlishús með 16 íbúðum hvert auk húsvarðaíbúðar.  Bílageymsla fylgir húsunum og er gert ráð fyrir 44 stæðum í henni.   Íbúðirnar eru 2-3 herbergja og er skilað fullbúnum án gólfefna, en með flísalögðum baðherbergjum- og þvottahúsgólfum. Lóð verður fullfrágengin með snjóbræðslulögnum í bílageymslurömpum, auk hluta hellulagðra og mynstursteypra göngustíga og bílastæða. Sameign verður fullfrágengin með flísalögðu anddyri og teppalögðu stigahúsi.

Íbúðirnar verða afhentar í nóvember og desember 2005 og mars 2006.

 

 

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn