Almennar fréttir

09. febrúar 2005

Bygging þjónustustöðvar Esso í Fossvogi

Nýverið undirrituðu ÍAV og Olíufélagið Esso samning um byggingu nýrrar þjónustustöðvar Esso við Kringlumýrarbraut 100 í Fossvogi. Stöðin verður um 400 fermetrar að stærð og mun hún verða með svipuðu sniði og stöðvarnar við Borgartún og Háholt í Mosfellsbæ sem ÍAV byggðu. ÍAV munu sjá um framkvæmdina en þær hefjast síðar í mánuðinum. Gert er ráð fyrir að stöðin opni í sumar.

Í nýju þjónustustöðinni verður meðal annars þægindavöruverslunin Nesti og Burger King veitingastaður. Gert er ráð fyrir að um þrjátíu og fimm starfsmenn muni vinna við bygginguna þegar mest verður.

Byggingastjóri er Oddur H. Oddsson og verkefnisstjórar eru Gísli Lúðvík Kjartansson og Hjalti Gylfason.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Fréttasafn