Almennar fréttir

03. desember 2009

Einn og einn í senn

Nú má sjá hvernig fyrstu QB (Quasi Brick) sexstrendu kubbarnir sem þekja munu suðurhlið Tónlistar- og ráðstefnuhússins mynda heild,  þegar þeir eru festir saman einn og einn í senn.

Búið er að setja niður fyrstu línuna að mestu og unnið er hörðum höndum við að stilla kubbana af, áður en þeir verða festir við húsið. Eins og áður hefur verið getið um, munu alls fara eitt þúsund slíkir kubbar í gluggavirkið og 450 þeirra eru sérsmíðaðir.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Fréttasafn