Almennar fréttir

03. febrúar 2011

Endurgerð Suðurlandsbrautar 14

Nú í vikunni var undirritaður samningur við Reginn, fasteignafélag Landsbankans, um endurgerð Suðurlandsbrautar 14.

Verkið er þegar hafið og eru verklok áætluð í lok júní í ár.

Helstu verkþættir eru hönnun, rif á 500m2 skemmu á baklóð, rif á öllu innanhúss utan steyptra veggja, rif á utanhúsklæðningu, endurnýja öll lagnakerfi, endurinnrétta allt húsið (2.750m2) sem nútíma verslunar- og skrifstofuhúsnæði, klæða húsið að utan, endurbætur á lóð og stækkun bílastæða.

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn