Almennar fréttir

28. júní 2019

Enn veltir litla þúfan þungu......

Við starfsmenn ÍAV erum ótrúlega heppin að hafa átt þess kost að borða hjá henni Röggu síðustu 13 árin. Hún er búin að gleðja okkur endalaust með góðum og hollum mat ástamt því að vera afspyrnu hress matráður sem segir það sem henni býr í brjósti, en alltaf af hugulsemi og væntum þyggju.

Núna var hún enn að gefa, núna 350 þúsund. Í febrúar sl. gaf hún 1,3 milljónir. Í janúar 2015 gaf hún 700 þúsund. Tæpar 3 milljónir frá henni til Umhyggju. Stórkostlegur árangur!

Allnokkur fyrirtæki hafa lagt hönd á plóginn og greitt allan kosnað við útgáfuna þannig að allt sem safnast skilar sér til Umhyggju - félags langveikra barna.

Til hamingju Ragnheiður Ketilsdóttir – við erum stolt af þér!

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt var um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teimið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Formleg afhending "West End project"
06. júní 2023

Formleg afhending "West End project"

24.maí 2023 tók Bandaríkjaher formlega við verkinu „West End project“. Athöfnin var haldin uppá Keflavíkurflugvelli með fulltrúm verkkaupa, Íslenskra aðalverktaka og Landhelgisgæslunnar.

Skrifað undir verksamning um breikkun Reykjanesbrautar
21. maí 2023

Skrifað undir verksamning um breikkun Reykjanesbrautar

Fimmtudaginn 17.maí undirrituðu Íslenskir aðalalverktakar hf. og Vegagerðin verksamning um breikkun Reykjanesbrautar uppá tæpa 4 milljarða. Um er að ræða samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta, Ljósleiðarans, Carbfix og Veitna. Verkefnið er síðasti áfangi í tvöföldun Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla við álverið í Straumsvík auk brúarmannvirkja og undirganga fyrir akandi, gangandi og hjólandi. Áætlaður verktími er 3 ár, frá júní 2023 til júní 2026.

Fréttasafn