Almennar fréttir

06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Um forval og svo alútboð  var að ræða.

Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið.

 


Fyrirhugað er að reisa nýja fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka í Sundahöfn (e. cruise ship terminal).

Aðstöðunni er ætlað að þjóna öllum gerðum farþegaskipa, hvort heldur fyrir farþega sem hefja eða

ljúka sinni ferð á Íslandi (farþegaskipti) eða fyrir farþega skipa sem eiga viðkomu á Íslandi.

Mikil aukning hefur orðið á komu farþegaskipa og er fyrirsjáanleg aukning næstu ár.

Miðstöðinni er ætlað að þjóna sem landamærastöð til og frá Íslandi fyrir farþega utan og innan Schengen

svæða með öryggisleit, farangurs skönnun, tolla aðstöðu, ásamt annarri tengdri þjónustu við farþega.

Utan háannatíma er mögulegt að nýta hluta húsnæðis fyrir viðburði.

 

ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio  voru forvaldir og tóku þátt í samkeppninni.

Okkar markmið var að hanna fjölnota byggingu sem nýtist sem farþegamiðstöð stóran hluta úr ári en annars fyrir viðburði af ýmsu tagi.

Í hönnun byggingarinnar er því lögð áhersla á góða yfirsýn, flæði og skilvirkni með mikinn sveigjanleika.

Grunnhugmyndin er mjög sveigjanlegt rými / „Black Box“ á tveimur hæðum, umlukið stoðrýmum og umferðarrými sem getur tengt alla inn- og útganga og skapað heppilegt flæði fyri hverskonar viðburði. Byggingin verður um 5.200 m² á tveimur hæðum  og  mun geta sinnt um 4.000 farþegum samtímis.

 


Það er ánægjulegt  að upplýsa um að  ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Formleg afhending "West End project"
06. júní 2023

Formleg afhending "West End project"

24.maí 2023 tók Bandaríkjaher formlega við verkinu „West End project“. Athöfnin var haldin uppá Keflavíkurflugvelli með fulltrúm verkkaupa, Íslenskra aðalverktaka og Landhelgisgæslunnar.

Fréttasafn