Framkvæmdir hafnar við nýtt flugskýli Icelandair
Á lóðinni Fálkavöllur 27 er verið að byggja við núverandi flugskýli Icelandair um 10.500 fermatra viðbyggingu sem mun hýsa nýtt flugskýli, lagerrými og tengibyggingu við núverandi skýli.
Verkið felst í að steypa upp sökkla, járnbinda og steypa neðri hluta botnplötu flugskýlishlutans.
Verkið fer fram utan girðingar sem umlykur Keflavíkurflugvöll. Verkefnastjóri er Hafsteinn V. Jónsson.