Almennar fréttir

09. apríl 2008

Glæsilegt húsnæði Heimsferða

Heimsferðir hafa tekið í notkun nýjar og stærri höfuðstöðvar að Skógarhlíð 18.  ÍAV sáu um hönnun og stækkun húsnæðisins sem er um 1.100 fermetrar á þremur hæðum.  Framkvæmdir hófust í ágúst 2006 og er nýbyggingin viðföst gömlu höfuðstöðvunum sem stækkuðu um helming.

Heimsferðir voru stofnaðar 1992 og fagna því 15 ára afmæli í ár.  Starfsemi fyrirtækisins hefur vaxið fiskur um hrygg og hefur veltan fimmtánfaldast á undanförnum tveimur árum.

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn