Almennar fréttir

11. desember 2009

Harpa

Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Austurhöfn hefur hlotið nafnið Harpa.  Þetta var opinberað við hátíðlega athöfn í húsinu í dag.   Tíu ára gömul stúlka, Harpa Karen Antonsdóttir gaf húsinu nafnið. Efnt var til samkeppni um nafn á húsið og bárust þúsundir tillaga en þó nokkrir höfðu stungið upp á þessu nafni.

Stórsveit Samma lék af þessu tilefni fyrir gesti auk þess sem boðið var upp  kakó og kleinur. Margir voru viðstaddir athöfnina meðal annarra borgarstjóri og menntamálaráðherra, ásamt starfsmönnum ÍAV.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Fréttasafn