Háskólatorg
ÍAV hófu í apríl 2006 byggingu á Háskólatorgi. Háskólatorg er samheiti tveggja bygginga, sem með tengibyggingum verða alls um 8.500 fermetrar. Háskólatorg 1, á þremur hæðum, rís á grasflötinni milli Aðalbyggingar og íþróttahúss Háskólans. Háskólatorg 2 sem er á tveimur hæðum, verður reist á bílastæðinu milli Odda, Lögbergs og Nýja Garðs. Gert er ráð fyrir að Háskólatorg verði vígt þann 1. desember 2007.