Almennar fréttir

04. desember 2008

Heilög Barbara heiðruð

Jarðgangagerðarmenn Ósafls í Bolungarvík héldu daginn, 4. desember, hátíðlegan og fögnuðu degi heilagrar Barböru, verndardýrlings námumanna. Starfsmenn Ósafls eru margir hverjir kaþólskir og þótti við hæfi að sameina hátíðarhöld tengd Barböru við jólahátíðina. Byrjað var á því að fara inní göng og þar voru tvær styttur blessaðar af kaþólskum presti og annarri komið fyrir í þar til gerðum skáp svo að líkneski af Barböru blasir við þegar keyrt er í göngin.Eftir nokkur ræðuhöld söng karlakórinn Ernir nokkur lög. Starfsmenn Ósafls efndu til veislu þar sem glæsilegar veitingar voru í boði eftir athöfnina á framkvæmdasvæði Ósafls við Ós í Bolungarvík.

Barbara gegnir viðamiklu hlutverki í kaþólskri trú en hún er verndari námumanna, vopnasmiða, steinsmiða, jarðfræðinga og flugeldatækna. Þá þykir hún góð til fyrirbæna hjá slökkviliðsmönnum, múrurum og vitavörðum. Einnig sinnir hún sjúkum og verndar þá gegn eldi.

Heilög Barbara er sögð hafa fæðst árið 218 í borginni Nicomedia í Tyrklandi. Rómverski harðstjórinn Dioscorus var faðir hennar. Barbara þótti afar fögur en Dioscorus vildi halda henni frá girndaraugum vonbiðla. Dag einn þegar hann kom heim eftir langa fjarveru komst hann að því að Barbara hafði gerst kristin og sótt skóla hjá kristnum lækni. Dioscorus skipaði þegar í stað að láta reisa sérstakt hús fyrir Barböru þar sem hún skyldi höfð í stofufangelsi. En Barabara veitti viðnám. Hún lét smiði fjölga gluggum svefnherbergisins úr tveimur í þrjá, en það átti að undirstrika trú hennar. Einnig neitaði hún að giftast þeim manni sem faðir hennar hafði valið handa henni. Þetta og fleira varð til þess að Barbara var dæmd til dauða og skyldi hún hálshöggvin. Þar sem faðir Barböru stóð yfir líki dóttur sinnar eftir að hafa sjálfur höggið höfuð hennar af með sverði, laust eldingu í sverðið og dó hann samstundis.Á þetta var litið sem teikn um hefnd guðs.

 

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt var um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teimið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Formleg afhending "West End project"
06. júní 2023

Formleg afhending "West End project"

24.maí 2023 tók Bandaríkjaher formlega við verkinu „West End project“. Athöfnin var haldin uppá Keflavíkurflugvelli með fulltrúm verkkaupa, Íslenskra aðalverktaka og Landhelgisgæslunnar.

Skrifað undir verksamning um breikkun Reykjanesbrautar
21. maí 2023

Skrifað undir verksamning um breikkun Reykjanesbrautar

Fimmtudaginn 17.maí undirrituðu Íslenskir aðalalverktakar hf. og Vegagerðin verksamning um breikkun Reykjanesbrautar uppá tæpa 4 milljarða. Um er að ræða samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta, Ljósleiðarans, Carbfix og Veitna. Verkefnið er síðasti áfangi í tvöföldun Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla við álverið í Straumsvík auk brúarmannvirkja og undirganga fyrir akandi, gangandi og hjólandi. Áætlaður verktími er 3 ár, frá júní 2023 til júní 2026.

Fréttasafn