Almennar fréttir

23. janúar 2013

Hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ

Vinna við uppsteypu hjúkrunarheimilisins við Nesvelli í Reykjanesbæ hófst um miðjan október 2012. ÍAV var lægstbjóðandi í verkhluta sem snýr að uppsteypu hússins og utanhúsfrágangi ásamt því að ganga frá þaki hússins. Byggingin sjálf er um 4000 m2 að stærð.

Um þessar mundir starfa um 20 manns við verkið, trésmiðir, rafvirkjar og starfsmenn við járnabindingar. Verklok uppsteypuáfangann eru áætluð í október á þessu ári.

 

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn