Almennar fréttir

05. febrúar 2010

Jón Gnarr heimsótti starfsmenn ÍAV

Það var enginn annar en „frambjóðandinn„ Jón Gnarr sem leit við fyrir skemmstu og heilsaði upp á starfsmenn ÍAV sem vinna við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Hann var í þeim erindagjörðum að kynna sig sem frambjóðanda „Besta flokksins“.

Enginn veit hvort um grín eða alvöru er að ræða en starfsmönnum ÍAV var skemmt að fá grínarann í heimsókn og tóku vel á móti honum. Þegar líður að borgarstjórnarkosningum kemur væntanlega í ljós hvers kyns er, grín eða alvara.

 

 

 

 

 

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn