Almennar fréttir

13. janúar 2006

Kraftvélar

ÍAV hefur tekið að sér að vinna með P.S. Fasteignum ehf að stækkun húsnæðis Kraftvéla að Dalvegi 6-8. ÍAV hefur umsjón með hönnun og verkframkvæmdinni allri í samræmi við hönnun og lausnir sem aðilar hafa sameiginlega lagt til. Verksamningur er háður marksamningi samningsaðila um heildarkostnað verksins.

Áformuð stækkun er samtals 925 m2. Stækkun er annarsvegar á verkstæðisbyggingu og hins vegar nýbygging lagerhúsnæðis sem er um 525 m2. Lagerhúsnæðið er á einni hæð og verður grafið út fyrir því þar sem núverandi bílastæði er. Gengið verður frá þaki lagers þannig að hægt verður að nýta það sem bílastæði fyrir léttar bifreiðar. Verklok eru áætluð í október 2005. Verkefnastjóri er Guðmundur Karl Marinósson og byggingarstjóri er Guðmundur Konráðsson.

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn