Landsbankinn – Fullnaðarfrágangur
Framkvæmdir á vegum ÍAV í Landsbankanum eru að fara á fullt. Verkefni ÍAV er fullnaðarfrágangur á byggingunni að innan og utan. Ísetning glugga hefst í lok apríl og uppsetning steinklæðningar í kjölfarið. Uppsteypuverktaki lýkur sínu verki um mitt sumar og þá getur frágangur innan og utanhúss hafist af krafti.
Um er að ræða fimm hæða byggingu og kjallara á tveimur hæðum, sem mun skiptast í mismunandi áfanga, bankastarfsemi, skrifstofu- verslunar- og þjónusturými. Verslunar- og þjónusturými á eru á jarðhæð og á hluta efri hæðar kjallara. Í kjallara eru tæknirými, ýmis stoðrými, ásamt bílastæðum og hjólageymslu. Stærð byggingar er um 22.000 m2, þar af 1.500 m2 tæknirými og 4.000 m2 bílakjallari. Byggingin verður BREEAM vottuð og markmiðið er að byggingin nái einkunn „Excellent“ samkvæmt BREEAM International New Construction 2016 SD233 2.0.
Helstu verkþættir fullnaðarfrágangs
Frágangur utanhúss:
Einangrun og múrverk 3.000 m2
Einangrun útveggja og lofta 3.500 m2
Þakfrágangur 5.300 m2
Uppsetning steinklæðningar með upphengikerfi 3.300 m2
Álgluggar 600 m2
Útihurðir 32 stk
Málun 5.300 m2
Frágangur innanhúss:
Innveggir 7.200 m2
Glerkerfisveggir 100 stk.
Niðurtekin loft 10.800 m2
Stálhandrið 1.000 m.
Málun 20.000 m2
Gólfefni 13.900 m2
Innréttingar, innihurðir ofl., heild.
Lagnakerfi:
Frárennsli: Steypujárnslagnir 530 m, PP lagnir 790 m, lokaðar skolpdælur með stýringum 7 stk.
Neysluvatnskerfi: Álpex 2.050 m, ryðfrítt stál 1.970 m
Hitaveitukerfi: Svart stál 6.170 m, gólfhitalagnir 5.500 m, snjóbræðslulagnir 4.200 m, gryfjuofnar 270 stk.
Vatnsúðakerfi: svart stál 8.700 m, úðastútar 2.500 stk.
Kælikerfi: PPr lagnir 6.700 m
Loftræsikerfi: kanntaðir stokkar 48.000 kg, sívalir stokkar 4.000 m, flæðilokur 80 stk, reyk og brunalokur 200 stk, 3 stk. loftræsisamstæður 40-50.0000 m3/klst með varmaendurvinnslu, kæliraftar 500 stk.
Rafkerfi:
Lagnaleiðir: Netstigar 2.760m, tenglarennur 1.000m, skinnustokkakerfi 120m, töfluskápar 32stk, lágspennustrengir 51.000m
Lampar: 3600stk
Stýristrengir hússtjórnarkerfis: 46.000m, KNX rofar 170stk
Brunaviðvörunarkerfi: Strengir 15.000m, skynjarar 430stk, hátalarar rýmingarkerfis 170stk
Fjarskiptakerfi: Strengir 67.000m,
Rafstöð: 900kW