Almennar fréttir

21. apríl 2006

Lindargatan-Reykjavík komin í sölu

Lindargata 27 er glæsilega hannað viðahaldslítið átta hæða lyftuhús. Íbúðunum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum og með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Sér þvottahús er í hverri íbúð, auk þess eru rúmgóðar geymslur í kjallara fyrir hverja íbúð.

Innréttingar eru spónlagðar. Kaupendur geta valið um þrjár viðartegundir.Í eldhúsi verður keramik helluborð með fjórum hellum, blástursofn og gufugleypir.Heimilistæki eru að AEG gerð með burstaðri stáláferð eða sambærilegt. Dyrasími er tengdur myndavél í aðalanddyri.Sjónvarpsloftnets- og símatenglar eru frágengnir í stofu, borðkrók og svefnherbergjum. Í íbúðunum er tengikassi fyrir stjörnutengingar síma-, loftnets-, tölvu-, breiðbands- og ljósleiðaratengingar.

Sameign og lóð eru fullfrágengin.Snjóbræðsla er við aðalanddyri, aðkomurampa og í bílastæðum. Göngustígar og hluti bílastæða er hellulagður. Leiksvæði er með gúmmíhellum og leiktæki sbr. teikningar lóðarhönnuðar. Frábær staðsetning og stutt í alla þjónsutu. Nútímaleg hönnun og allur frágangur er sérlega vandaður. Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja frá stærðinni 80-135 fm.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt var um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teimið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Formleg afhending "West End project"
06. júní 2023

Formleg afhending "West End project"

24.maí 2023 tók Bandaríkjaher formlega við verkinu „West End project“. Athöfnin var haldin uppá Keflavíkurflugvelli með fulltrúm verkkaupa, Íslenskra aðalverktaka og Landhelgisgæslunnar.

Skrifað undir verksamning um breikkun Reykjanesbrautar
21. maí 2023

Skrifað undir verksamning um breikkun Reykjanesbrautar

Fimmtudaginn 17.maí undirrituðu Íslenskir aðalalverktakar hf. og Vegagerðin verksamning um breikkun Reykjanesbrautar uppá tæpa 4 milljarða. Um er að ræða samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta, Ljósleiðarans, Carbfix og Veitna. Verkefnið er síðasti áfangi í tvöföldun Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla við álverið í Straumsvík auk brúarmannvirkja og undirganga fyrir akandi, gangandi og hjólandi. Áætlaður verktími er 3 ár, frá júní 2023 til júní 2026.

Fréttasafn