Almennar fréttir

11. júní 2008

Nýtt lager -og skrifstofuhúsnæði fyrir Ölgerðina hf.

ÍAV byggir nýtt lager og skrifstofuhúsnæði fyrir ölgerðina á lóð þeirra að Grjóthálsi 7-11.

Húsnæðið, sem byggt verður við gömlu byggingu ölgerð Egils Skallagrímssonar, verður rúmlega 12.500 fermetrar að stærð á fjórum hæðum auk kjallara, verður reist við vesturenda hússins sem fyrir er. Húsið skiptist í lager á fyrstu hæð, skrifstofur á annarri, þriðju og fjórðu hæð og tæknirými. Húsnæðið mun verða notað undir starfsemi Ölgerðarinnar og Danól en þau fyrirtæki sameinast nú um áramótin.

Framkvæmdir hófust í byrjun árs 2008 og verður húsinu skilað tilbúnu til notkunar, með skrifstofubúnaði og hillukerfum í mars 2009.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Fréttasafn