Ný tæki hjá ÍAV
Eftir talsverða bið þá er ánægjulegt að segja frá því að ÍAV hefur á síðustu mánuðum fengið afhent talsvert af nýjum tækjum.
Má þar helst nefna Volvo beltagröfu , Caterpillar beltagröfu, tvær Volvo hjólagröfur, Volvo hjólaskóflu, Liebherr hjólaskóflu, Caterpillar jarðýtu og Liebherr byggingakrana.
Endurnýjun tækja er ein af megin forsendum góðs rekstrar og er það trú okkar að þessi tæki muni styðja við rekstur ÍAV á komandi árum.