Nýtt hótel Mariott keðjunnar
ÍAV er með stýriverktökusamning að byggja upp alla aðstöðu á þessu þjónustusvæði og þar á meðal hótel. Hótelinu á að skila seinni part árið 2019 en þjónustukjarninn þar sem verða verslanir og veitingarstaðir er áætlað síðar.
Unnið hefur verið að þessu verkefni í allnokkurn tíma og hefst jarðvinna af fullum krafti í dag. Það sem er öðruvísi við þetta hótel er að kjallari að hluta og fyrsta hæð er steypt upp en svo koma 3 hæðir af module einingum frá Kína sem raðað verður saman en í hverri einingu eru 2 herbergi. Húsið verður svo klætt að utan og þak sett á það. Module einingarnar eru áætlaðar hingað þann 3 apríl 2019.