Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi
Undanfarnar vikur hefur matreiðslubókin Rögguréttir selst mjög vel en hún er styrktarverkefni tveggja starfsmanna ÍAV, hennar Röggu (Ragnheiðar Ketilsdóttur) og Auðar Steinardóttur.
Í dag var Umhyggju, félagi til stuðnings langveikra barna afhentur afrakstur verkefnisins. Umhyggja fékk tékka að upphæð 700 þúsund og rúmlega það. Þetta var ekki Tékki eins og þeir sem fara illa með landsliðið okkar í handbolta heldur alvöru millifærsla J
Ragna K. Marinósdóttir veitt styrknum móttöku á skrifstofu ÍAV í dag og við óskum félaginu velfarnaðar. Ragna sagði við þetta tækifæri að þetta kæmi sé óskaplega vel og þau gætu nú hjálpað fleiri fjölskyldum sem eru í þeirri stöðu að þurfa á aðstoð að halda.
Hér má sjá nokkrar myndir frá viðburði dagsins. Smelltu á myndina!