Almennar fréttir

21. apríl 2006

Opið hús sumardaginn fyrsta í Hveragerði

Fimmtudaginn 20. apríl verður opið hús í Hveragerði. Gestum gefst kostur á að skoða íbúð að Lækjarbrún 13. Þjónustuhús við Lækjarbrún í Hveragerði veitir þér tækifæri til að njóta lífsins í faðmi einstakrar náttúru og hafa jafnframt aðgang að margvíslegri þjónustu Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands. Sýningin mun standa frá kl. 13 til 17.

Kaupendur gerast sjálfkrafa aðilar að samningi við HNLFÍ sem veitir aðgang að viðamikilli þjónustu Heilsustofnunarinnar gegn greiðslu mánaðarlegs grunngjalds. Íbúðum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum og flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja frá stærðinni 86–111 fm.

Rómuð náttúrufegurð, friðsæld og nálægð við hvers kyns þjónustu og heilsurækt eru nokkrir af þeim kostum til að njóta lífsins sem bjóðast í Hveragerði. Fallegar gönguleiðir allt í kring, golfvöllur, hesthús og margvísleg afþreying á svæðinu.

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn