Almennar fréttir

13. nóvember 2021

Samningar - Maríugata 5

Bjarg Íbúðafélag hses. og ÍAV undirrituðu þann 5. nóvember s.l verksamning sem felur í sér að ÍAV byggi og afhendi alls 22 almennar leiguíbúðir við Maríugötu 5 í Urriðaholtinu, Garðabæ. Um er að ræða eitt fjölbýlishús upp á 5 hæðir.

Á sömu lóð mun ÍAV jafnframt reisa annað fjölbýlishús nánast alveg eins fyrir Búseta, samningar við þá félagið eru langt komnir.  Burðarkerfi húsanna er eins en einungis verða 20 íbúðir í Búseta hlutanum.  Frágangur inni er nokkuð mismunandi á milli húsanna, má þar nefna vélrænt innsog hjá búseta, innréttingar og frágangur er einnig mismunandi svo eitthvað sé nefnt.

Samningsform er fast heildarverð í báðum tilfellum.

Íbúðirnar til Bjargs verða afhentar í lok janúar 2023 og reiknað með að íbúðir fyrir Búseta verði afhentar í mars sama ár.

Verkefnastjóri verður Leó Jónsson, byggingarstjóri Guðjón Ólafur Guðbjörnsson og aðstoðar verkefnastjóri Friðleifur Kristjánsson.

Miðað er við að jarðvegsframkvæmdir og aðstöðusköpun hefjist síðari hluta nóvember.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Formleg afhending "West End project"
06. júní 2023

Formleg afhending "West End project"

24.maí 2023 tók Bandaríkjaher formlega við verkinu „West End project“. Athöfnin var haldin uppá Keflavíkurflugvelli með fulltrúm verkkaupa, Íslenskra aðalverktaka og Landhelgisgæslunnar.

Fréttasafn