Almennar fréttir

25. nóvember 2005

Samningur milli ÍAV og Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar

Samningur var undirritaður í gær milli ÍAV og Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar um  hönnun og byggingu íþróttaaðstöðu fyrir íþróttafélagið Ármann í Laugardal. Húsið verður félagsaðstaða Ármanns ásamt fimleika- og bardagasölum og liggur að núverandi húsi Þróttar. Húsið verður á tveimur hæðum og um 3.200 m2 að stærð.

Framkvæmdir hefjast næstu daga og er áætlað að ljúka haustið 2006.

Twitter Facebook
Til baka

Fréttasafn