Almennar fréttir

12. júní 2008

Samningur um byggingu annars áfanga Sjálandsskóla

Karl Þráinsson aðstoðarforstjóri ÍAV og Sævar Þorbjörnsson framkvæmdastjóri Fasteignar hf. undirrituðu samning um byggingu annars áfanga Sjálandsskóla. ÍAV byggði einnig fyrsta áfanga skólans á árunum 2004-2005.

Framkvæmdin felst í því að reisa um 3000 fermetra tengibyggingu við núverandi skólabyggingu. Tengibyggingin mun vera staðsett við sjóinn og gangurinn sem tengir byggingarnar saman mun liggja yfir Vífilstaðarlækinn. Tengibyggingin mun m.a. hýsa sundlaug, íþróttasal og mötuneyti.

Jarðvinna hafin, unnið er að aðstöðusköpun en einnig er steypuvinna að fara hefjast. Gert er ráð fyrir því að um 40-50 manns muni vinna að verkinu þegar mest verður. Verklok eru í júlí 2009. 



 

 

 

 

 

 


Viðbyggingin er vinstra megin við lækinn.

Twitter Facebook
Til baka

Skrifað undir verksamning um breikkun Reykjanesbrautar
21. maí 2023

Skrifað undir verksamning um breikkun Reykjanesbrautar

Fimmtudaginn 17.maí undirrituðu Íslenskir aðalalverktakar hf. og Vegagerðin verksamning um breikkun Reykjanesbrautar uppá tæpa 4 milljarða. Um er að ræða samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta, Ljósleiðarans, Carbfix og Veitna. Verkefnið er síðasti áfangi í tvöföldun Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla við álverið í Straumsvík auk brúarmannvirkja og undirganga fyrir akandi, gangandi og hjólandi. Áætlaður verktími er 3 ár, frá júní 2023 til júní 2026.

Landsbankinn - Dyrnar opnaðar á skrifstofum framtíðarinnar
10. maí 2023

Landsbankinn - Dyrnar opnaðar á skrifstofum framtíðarinnar

Starfsfólk Landsbankans hefur nú hafið flutninga í nýjar höfuðstöðvar. Íslenskir aðalverktakar hafa unnið að verkinu síðustu ár með frábærum samstarfsaðilum. Skrifstofurnar setja ný viðmið á Íslandi þegar kemur að sjálfbærni og nútímalegri vinnuaðstöðu.

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Fréttasafn