Samningur ÍAV og HS Orku
Í dag 15. júlí undirrituðu ÍAV og HS Orka verksamning um að leggja 4,5 km langa stofnlögn frá niðurdælingasvæði Orkuverksins við Þorbjarnarfell til sjávar í Arfadalsvík vestan Grindavíkur.
Lögnin er að mestu niðurgrafin DN 500 mm stálpípa í 630 mm plastkápu. Verkið hefst í ágúst og verklok eru í júní á næsta ári.