Almennar fréttir

27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember.  Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.  Gerðar eru miklar kröfur varðandi aðgengisstýringu og sem minnsta truflun á daglegri starfsemi bankans. Áætluð verklok eru 1. mars 2024. Verkefnisstjóri fyrir ÍAV er Hafsteinn B. Gunnarsson og eru framkvæmdir við aðstöðusköpun og rif í fullum gangi auk þess sem þegar er byrjað á vinnu við uppbyggingu.  Meðal undirverktaka verða Bor, Stjörnublikk og Kraftlagnir en rafvirkjadeild ÍAV mun annast raflagnir

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Formleg afhending "West End project"
06. júní 2023

Formleg afhending "West End project"

24.maí 2023 tók Bandaríkjaher formlega við verkinu „West End project“. Athöfnin var haldin uppá Keflavíkurflugvelli með fulltrúm verkkaupa, Íslenskra aðalverktaka og Landhelgisgæslunnar.

Fréttasafn