Sölusýning á Egilsstöðum
Laugardaginn 13. október var haldin sýning á nýju fullbúnu húsi að Norðurtúni 1 á Egilsstöðum.
Húsið er þriggja herbergja og sérlega fallegt, með vönduðum innréttingum og tækjum. Hitalagnir eru í gólfum og skilast húsið með eikarparketi. Að utan er það klætt með litaðri bárumálmklæðningu og að hluta með litaðri viðarklæðningu.
Sýningin stóð yfir á milli kl. 14 og 17