Stækkun frystigeymslu Síldarvinnslunnar hf.
Þann 21. október undirrituðu Íslenskir aðalverktakar hf. og Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað verksamning um byggingu 7000 fermetra frystigeymslu sem byggð verður í Neskaupstað.
Bygging frystigeymslunnar er kærkomin viðbót við verkefni félagsins á austurlandi, en þessa dagana er einmitt að ljúka byggingu vinnubúða á Reyðarfirði í tengslum við álversframkvæmdirnar. Undirbúningur framkvæmda er þegar hafin og verður geymslan tekin í notkun 1. febrúar 2006.