Almennar fréttir

10. apríl 2007

Stækkun Leikskólans Skógarlands hafin

Hafnar eru framkvæmdir við stækkun leikskólans Skógarlands á Egilsstöðum. Byggðar verða tvær deildir sem rúma um 50 nemendur. Í dag eru nemendur skólans tæplega 90 talsins. Leikskólinn var upphaflega teiknaður sem 6 deilda skóli en fyrir eru 4 deildir ásamt öllum stoðrýmum. 

ÍAV byggðu leikskólann og luku fyrsta áfanga sumarið 2005.  Viðbyggingin er 190 fermetrar og endanleg heildar stærð skólans verður 1071 fermetrar.  

Áætlað er að framkvæmdum ljúki 1. september 2007.  Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar komi ekki til með að hafa veruleg áhrif á starfsemi skólans, þar sem stefnt er að því að umfangsmeiri framkvæmdir verði unnar á sumarleyfistíma leikskólans.

Twitter Facebook
Til baka

Skrifað undir verksamning um breikkun Reykjanesbrautar
21. maí 2023

Skrifað undir verksamning um breikkun Reykjanesbrautar

Fimmtudaginn 17.maí undirrituðu Íslenskir aðalalverktakar hf. og Vegagerðin verksamning um breikkun Reykjanesbrautar uppá tæpa 4 milljarða. Um er að ræða samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta, Ljósleiðarans, Carbfix og Veitna. Verkefnið er síðasti áfangi í tvöföldun Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla við álverið í Straumsvík auk brúarmannvirkja og undirganga fyrir akandi, gangandi og hjólandi. Áætlaður verktími er 3 ár, frá júní 2023 til júní 2026.

Landsbankinn - Dyrnar opnaðar á skrifstofum framtíðarinnar
10. maí 2023

Landsbankinn - Dyrnar opnaðar á skrifstofum framtíðarinnar

Starfsfólk Landsbankans hefur nú hafið flutninga í nýjar höfuðstöðvar. Íslenskir aðalverktakar hafa unnið að verkinu síðustu ár með frábærum samstarfsaðilum. Skrifstofurnar setja ný viðmið á Íslandi þegar kemur að sjálfbærni og nútímalegri vinnuaðstöðu.

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Fréttasafn