Almennar fréttir

25. júní 2012

Starfsmenn ÍAV fá forskot á sæluna

Í gærkvöldi buðu Portus og Sinfóníuhljómsveit Íslands, starfsmönnum ÍAV og undirverktökum við byggingu Hörpunnar á prufutónleika Sinfóníunnar í Eldborg.

Leikin voru verk eftir Dímítríj Sjostakovitsj, Ludwig van Beethoven og Jean Sibelius. Tónleikarnir voru ekki hefðbundnir heldur var um að ræða hljóðprufu. Ekki var annað að sjá og heyra en starfsmenn hefðu kunnað vel að meta tónlistarveisluna og salurinn skartaði sínu fegursta í tilefni dagsins.

 

 

Twitter Facebook
Til baka

Fréttasafn