Almennar fréttir

19. september 2014

Störf hjá ÍAV í Reykjanesbæ

Vegna aukinna verkefna óskar ÍAV eftir að ráða í eftirtalin störf á verkstæði félagsins í Reykjanesbæ.

Bifvélavirki / vélvirki
Mikilvægt er að viðkomandi hafi réttindi og reynslu af viðgerðum á stórum vinnuvélum. Nánari upplýsingar veitir Þórmar Viggósson í s. 660-6225.

Járniðnaðarmaður
Mikilvægt er að viðkomandi hafi réttindi og reynslu af járnsmíðavinnu. Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur Hauksson í s. 660-8134.

Iðnnemar
Einnig er óskað eftir umsóknum frá iðnnemum sem vilja komast á samning.

Umsóknir má finna á heimasíðu ÍAV, www.iav.is.

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn